Taktu á móti greiðslum á netinu, með eða án forritunar
Komdu þessu í gang í dag.
Kling auðveldar þér að taka við greiðslum á netinu, með eða án forritunar. Hentar fyrirtækjum og félögum af öllum stærðum.
Hvers konar starfsemi ertu með?
Félagatal og félagsgjöld á einum stað
Haltu utan um félagsmenn, sendu kröfur vegna félagsgjalda í heimabanka eða innheimtu gjöldin með reglulegum kortagreiðslum. Með Kling hefur stjórnin yfirsýn yfir hverjir hafa greitt og ver minni tíma í að yfirfara og skrá greiðslur.
Veldu tilbúna lausn sem hentar þér
Viðburðasíða með skráningu, miðasölu og innritun
Þú virkjar lausnina Viðburðir í mælaborðinu. Þú býrð til viðburð, opnar viðburðasíðu með skráningu og fylgist með þátttakendum, greiðslum og lausum plássum á einum stað.
Grunnvörurnar á bak við allt saman
Greiðslugluggi á þínum forsendum
Greiðsluglugginn er fyrir þig sem vilt meiri stjórn og samfellda upplifun í vefversluninni. Forritari tengir hann inn á síðuna þína og fólk klárar kaupin þar sem það er, án þess að hoppa á milli síðna.
Þín greiðslusíða, þitt vörumerki
Kling sækir sjálfkrafa liti, leturgerðir og hnappastíl af vefsíðunni þinni — greiðslusíðan lítur út eins og hún hafi verið smíðuð hjá þér frá fyrsta degi.
Prófaðu — sláðu inn slóðina þína
Sharp & Bold
4.990 ISK
Kortanúmer
Gildir til
CVC
Sharp & Bold
Íslensk fyrirtæki treysta Kling

Jökull Sólberg
Forritari hjá Trip to Japan
"
Það var virkilega einfalt að setja þetta upp. Ég las skjölin, tengdi API-ið við bókunarferlið okkar og við byrjuðum að taka við greiðslum á nokkrum dögum. Þetta er greiðslulausnin sem hefur vantað á Íslandi, hönnuð nákvæmlega eins og forritarar vilja vinna.

Ferðaþjónusta

Ingólfur Sigurðsson
Tækniþjálfun
"
Við fengum lausn sem gerir nákvæmlega það sem okkur vantaði. Foreldrar skrá krakkana, velja kort eða kröfu og borga með greiðsludreifingu yfir tímabilið, og allar greiðslur koma fram á einum stað. Hundruð skráninga rúlluðu í gegn án þess að við þyrftum að elta neitt uppi.

Íþróttir og þjálfun

Kristín Hildur Ragnarsdóttir
Framkvæmdastjóri, Frami
"
Kling hefur gert okkur kleift að einfalda greiðsluferlið fyrir nemendur okkar. Uppsetningin var fljótleg, viðmótið er einfalt og þjónustan frábær. Við mælum eindregið með Kling fyrir öll fyrirtæki sem þurfa að taka við greiðslum á netinu.

Menntun

Ásgerður Björnsdóttir
Framkvæmdastjóri, SÁÁ
"
Með Kling getum við tekið á móti framlögum og félagsgjöldum á netinu á einfaldan hátt. Það var mikilvægt fyrir okkur að hafa lausn sem bara virkar — og Kling skilaði einmitt því. Félagsmenn okkar geta nú greitt og endurnýjað félagsaðild sína án vandræða.
Góðgerðarstarfsemi

David Esguerra
Framleiðslu- og afhendingarstjóri, Sódavatn
"
Við notum Kling með Journey fyrir áskriftir, tínslu og sendingar með Dropp og í okkar eigin akstri. Tengingin gekk vel og við vorum fljótt komin af stað. Kerfið sér um allt áskriftarflæðið frá greiðslu til endurtekinnar rukkunar og einfaldar lífið gríðarlega..
Áskriftir og sendingar

Erla Sævarsdóttir
Blómstra
"
Við notum Kling posann fyrir þá viðskiptavini sem koma til okkar í eigin persónu og síðan notum við áskriftarkerfið fyrir blómaáskriftirnar okkar. Uppsetningin var einföld og teymið var ótrúlega hjálplegt.
Áskriftir og sendingar
Af hverju Kling?
Vinnur með bönkum og greiðsluþjónustuaðilum
Kling virkar með Landsbankanum, Straumi og Rapyd. Kortagreiðslur og kröfur í heimabanka úr sama aðgangi.
ISK, EUR og USD
Þú getur sett upp samninga í erlendri mynt og verðlagt og gert upp í EUR eða USD, ekki bara í ISK.
Með eða án forritunar
Byrjaðu án forritunar eða tengdu greiðslugluggann við vefverslunina þína þegar þú vilt meiri stjórn.
Algengar spurningar
Hvað þarf ég að gera til að byrja?
- Skráðu þig á kling.is. Það tekur nokkrar mínútur.
- Prófaðu kerfið strax í prófunarumhverfinu, án þess að raunverulegar greiðslur fari fram.
- Sæktu um að virkja móttöku greiðslna í kerfinu. Við sendum þér áreiðanleikakönnun og samning til undirritunar.
- Þegar færsluhirðir hefur samþykkt umsóknina opnast raunumhverfið og þú getur byrjað að taka við greiðslum.
Hvað kostar að nota Kling?
Þú greiðir aðeins þegar greiðsla fer í gegn. Ekkert stofngjald, ekkert mánaðargjald og ekkert fast gjald.
- Kortagreiðslur í gegnum Kling posa
- 0,8%
- Kortagreiðslur í gegnum greiðsluhlekki, áskriftir, greiðsluglugga eða API
- 1,5%
- Rukkun í heimabanka
- 0,8%
Gjald fyrir rukkun í heimabanka er að lágmarki 25 kr. og að hámarki 250 kr. á hverja kröfu.
Gjöld færsluhirðis bætast við gjöld Kling fyrir kortagreiðslur og bankakostnaður við gjöld Kling fyrir kröfur í heimabanka.
Er mánaðargjald, stofngjald eða uppsagnarfrestur?
Nei. Þú borgar ekkert fyrir að vera með aðgang, ekkert fyrir að setja kerfið upp og ekkert þótt þú notir það ekki í einhvern tíma.
Þetta hentar vel þeim sem selja óreglulega, til dæmis á viðburðum eða yfir háannatíma.
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
- Greiðsluhlekkur. Þú býrð hann til í mælaborðinu og deilir honum hvar sem er.
- Greiðsluglugginn. Greiðsluglugginn opnast yfir vefsíðunni þinni og viðskiptavinurinn greiðir án þess að yfirgefa hana.
- Kling posi. Þú rukkar á staðnum úr símanum eða tölvunni, án sérstaks posabúnaðar.
- Rukkun í heimabanka. Krafa er send beint í heimabanka viðskiptavinarins.
- API. Full stjórn fyrir þá sem vilja útfæra eigið greiðsluferli.
Eru forritaskil (API) og skjölun í boði?
Já. Forritaskilin eru á api.kling.is og skjölunin á api.kling.is/docs. Þar finnurðu upplýsingar um greiðslur, áskriftir, viðskiptavini, kröfur, afsláttarkóða og fleira.
Við bjóðum líka upp á vafra-SDK fyrir greiðsluglugga og pakka á npm fyrir bakendatengingar.
Er Apple Pay eða Google Pay í boði?
Apple Pay birtist sem sérstök greiðsluleið í Apple-tækjum sem styðja það. Það fer eftir greiðsluveitunni þinni: það er í boði hjá Straumi, þarf að vera kveikt á því fyrir þig hjá Verifone og er ekki í boði hjá Rapyd.
Google Pay er í boði hjá Straumi. Það er ekki í boði hjá Verifone eða Rapyd.
Get ég rukkað í evrum eða dölum?
Já. Kling styður íslenskar krónur, evrur og dali. Við sjáum um að virkja hvern gjaldmiðil á aðgangnum þínum. Að því loknu geturðu bæði verðlagt og gert upp í viðkomandi gjaldmiðli.
Rukkun í heimabanka er þó eingöngu í íslenskum krónum.
Styður Kling áskriftir?
Já. Endurteknar greiðslur eru innbyggðar. Þú velur hversu oft er innheimt, til dæmis mánaðarlega eða árlega. Kortaupplýsingar eru vistaðar svo hægt sé að innheimta greiðslurnar sjálfkrafa.
Áskriftir má líka innheimta með kröfu í heimabanka í stað korts.
Viltu byrja?
Skráðu þig og fáðu aðgang að Kling á nokkrum mínútum. Ekkert greiðslukort þarf við skráningu.